Dagskrá vikunnar

Við þökkum öllum sem heimsóttu skáldahúsin í gær kærlega fyrir komuna og viðkynninguna. Það var gaman hversu margir létu sjá sig.

Dagskrá vikunnar er ekki af verri endanum, enda alltaf líf og fjör á Listasumri.

Fimmtudagur 12. júlí:

  • jessicasligterHeitur fimmtudagur í Deiglunni: The Story of Modern Farming: Jessica Sligter, á hljómborð, flautu og gítar, Louise Jensen á alt sax og Hilmar Jensson gestaleikari á gítar. Tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og miðar og afsláttarkort verða seld við innganginn. (Myndin er tekin af www.jessicasligter.com)

 

 

Föstudagur 13. júlí:

  • metropolitanoperaFöstudagshádegistónleikar í Ketilhúsi kl. 12:00: "All American - Live from New York." Söngkvartett Metropolitan óperunnar í New York: Consande Green, sópran, Ellen Land, mezzo, Irwin Reese, tenór, John Shelhart, bass-baritón og Robert Rogers, píanó.

 

 

Laugardagur 14. júlí:

  • Ketilhús kl. 14:00: Opnun á tveimur sýningum: Í aðalsal opna Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Kristina Bengtson sýninguna "Make it big or keep it simple". Á svölum opnar Bjargey Ingólfs sýninguna "Þræðir". Báðar sýningarnar standa til 29. júlí.
  • Deiglan kl. 15:00: Opnun á sýningu myndverka Unu Berglindar Þorleifsdóttur. Þessi sýning stendur einnig til 29. júlí.

Ekki missa af neinu af þessu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn! Hvað kostar miðinn á söngkvartett Metrópolitan operunnar? Kveðja Valdís E. P.

Valdís Eyja Pálsdóttir (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 11:41

2 Smámynd: Listasumar á Akureyri

Sæl Valdís.

Það kostar 1000 kr. inn á tónleikana.

Bestu kveðjur.

Listasumar á Akureyri, 12.7.2007 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband