Komið og njótið!

Aðsóknin á viðburði síðustu viku var með eindæmum góð. Myndir eru væntanlegar von bráðar. Við vonum að fólk hafi skemmt sér vel og bjóðum ykkur velkomin á tónleika vikunnar sem eru eftirfarandi:

  •  Heitur fimmtudagur í Deiglunni: Kvartett Ásgeirs Ásgeirssonar. Ólafur Jónsson á saxófón, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Þess má geta að tónleikarnir sem þeir félagar Erik Qvick og Þorgrímur Jónsson hafa leikið á í sumar slaga hátt í tíu. Þeir eru alltaf jafn hressir og þessir tónleikar verða án alls vafa nærandi fyrir líkama og sál.  Miðaverð er 1000 krónur og tónleikarnir hefjast klukkan 21:30. Látið ykkur ekki vanta!
  • Föstudagshádegistónleikarnir: Þeir verða á sama stað og tíma og venjulega; Ketilhúsinu klukkan 12 á hádegi. Að þessu sinni mun Björg Þórhallsdóttir, sópran, syngja fyrir gesti og Daníel Þorsteinssonleika undir á píanó. Tónleikarnir bera yfirskriftina "Íslensk rómantík". Og hvað er betra á síðsumri en einmitt íslensk rómantík? Þetta verður dásamlegt.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband