AlheimsHREINgjörningur hinn þriðji

annarichardsAnna Richards hefur hreingjört heiminn árum saman og ekki veitir af. Til að skila enn meiri árangri hefur hún síðustu þrjú ár boðið konum og körlum víðs vegar að úr veröldinni að taka þátt.

Nú er komið að þriðja Alheimshreingjörningnum, þar sem verk og gjörningar allra þjóða hreingjörningakvenna og karla koma saman og magna áhrifin. Í ár hefur hún fengið í lið með sér, auk annarra, Ragnhildi Gísladóttur, sem mun spinna rödd sína í fléttu við hreingjörning Önnu, Mardallarsystur Önnu, sem vinna að því að endurheimta týndan og falinn menningararf kvenna, sýna verk og leiða helgan gjöning þar sem goðin fornu verða kölluð til baka úr fossinum undir handleiðslu Valgerðar H. Bjarnadóttur.

Látið þennan einstaka viðburð ekki fara framhjá ykkur og mætið á Þorgeirskirkju við Ljósavatn í kvöld kl. 21:00.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband