Safnadagur í dag!

Við hvetjum alla sem hafa löngun til að minnast þjóðskáldanna Davíðs Stefánssonar og Matthíasar Jochumssonar að heimsækja húsin þeirra í dag.

davidshusDavíðshús er að Bjarkarstíg 6. Ef keyrt er niður Þórunnarstræti, rétt áður en komið er að lögreglustöðinni, má sjá skilti á hægri hönd sem vísar veginn þangað. Þar er opið frá kl.13:00 til 14:30.

Sigurhæðir eru í brekkunni fyrir neðan Akureyrarkirkju. Það er hægtsigurhaedir að leggja bílnum sínum í Hafnarstræti, til að mynda við gamla Tónlistarskólann og labba upp tröppurnar sem þar eru. Eða ganga kirkjutröppurnar (upp eða niður, fer eftir því í hvernig skapi fólk er) og beygja þá til vinstri eða hægri (fer eftir því hvort fólk labbar upp eða niður tröppurnar) á lítinn stíg sem liggur að húsinu. Þar er opið frá kl. 15:00 til 17:00.

Það er algerlega og að öllu leyti ókeypis í söfnin í dag og kleinur og kaffi verða í boði hússins fyrir alla sem láta sjá sig.

Dagskrá Safnadagsins má finna hér.

Verið hjartanlega velkomin.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband